|
Kemur í heiminn eftir
Fyrir 769 dögum
|
09.02.2008 18:34:11 / elin
Ég er orðin svo rosalega þreytt og pirruð á þessu blogg síðu! Ég er alltaf að lenda í einhverju rugli og veseni. Kemst stundum ekki inná hana í marga dag. Það vill svo skemmtilega til að ég á slóð hjá blog.is sem ég ætla að prófa að nota. Slóðin er www.elinros.blog.is. Endilega að kíkja þangað ef þið viljið fylgjast með mér Bara svo þið vitið, þá er bumbulíus ekkert á leiðinni. Greinilega að hinum finnst voða gott í mallakúttnum .
»
02.02.2008 20:40:25 / elin
Í gær 1 febrúar áttu ég og minn heitelskaði 16 ára trúlofunarafmæli. Þessi elska er búin að hanga með mér í 17 ár! Ánægð með hann . Ég þurfti að vísu ekkert að elta hann mikið í upphafi. Notaði frænku hans til að tæla hann og það virkaði svona rosa vel . Svo er ég líka svo sjarmerandi að það er ekki hægt annað en að falla fyrir mér . Allavega....þá langaði míg bara til að deila þessu með ykkur. Ekkert að gerast í bumbó, kemur sjálfsagt ekki fyrr en eftir 3 vikur og verður örugglega tekinn með valdi!. Asskoti finnst mér flott lagið með Friðrik og Regínu í laugardagslögunum. Fékk alveg fjaðrir á gæsahúðina. Kveðja Elín
»
31.01.2008 20:07:19 / elin
Ég er ekki búin að fæða ennþá! Ekkert að gerast, og vonandi ekki næstu daga. Ég lofa að láta vita ef eitthvað gerist
»
27.01.2008 21:53:55 / elin
Er orðin svo rosalega dugleg að blogga á viku fresti . Ég var að tala við vinkonu mína um daginn að maður væri ekki í lagi að vera 35 ára gömul og koma með annað barn. Hún benti mér á það, að ég væri örugglega með þeim yngri sem væri að eignast barn í dag. Konur væru miklu eldri að eignast sitt fyrsta barn. Ég varð að kyngja mínum fyrrum orðum og vera sammála henni. Ef ég hefði getað eignast barn fyrr, þá hefði ég gert það, en er samt auðvitað ROSA þakklát að vera með eitt lítið kríli á leiðinni.(Þó að ég sé orðin þetta gömul.) Hefði alveg geta lent í því að eignast ekki annað barn, og var við það gefast upp á þessu rugli og snúa mér að einhverju öðru. Gerði það sem betur fer ekki. ALDREI að gefast upp! Tveir fyrrum bekkjarbræður mínir eignuðust barn á síðasta ári og ein bekkjasystir sem ég veit um, kom með eitt í janúar. Held að það hafi verið fyrsta barn á nýju ári á Suðurlandi . USssss....endalaust væl í mér. Þetta er bara út af því að ég hef allt of mikin tíma til að vera ein með heilanum á mér . Það gerist ekki mikið í síðustu viku. Jú, ég fór og heimsótti fyrrum vinnustað. Fannst voða gott að vera bara í heimsókn, og geta farið eftir að spjallaði við þá sem voru inni. Sá elsti á vinnustaðnum saknaði mín ógurlega og vildi að ég væri bara í mínum stól, en tilkynnti mér að hann væri orðin afi og væri að fara að heimsækja lillu í Danmörku daginn eftir. Veit að það kemur annað afa barn í apríl svo það verður nóg að gera hjá honum við að fljúga til Danmerkur þetta árið . Við skruppum á Flúðir í mat í gær hjá vinum okkar og snæddum humar og grillað lamb. Gasalega gott og fínt að brjóta aðeins upp daginn. Ég var eiginlega að vona að það yrði smá ófærð á leiðinni, svona rétt til að athuga hvort jeppinn myndi nú ekki standa sig. Neibb, það var renni færð svo Þórður fór bara að prófa í sköflum sem var nóg af við bústaðinn. Það þarf ekki að segja frá því að sú ferð endaði á að Pajero þurfti að draga Patrol eftir smá stund sem var pikkfastur utan vegar . Bara að segja frá því.Sorry! Dísus, hef bara ekki frá meiru að segja......ef það er eitthvað "skúbb"þá væri ég alveg til í að heyra það. Adios for now.
»
20.01.2008 20:38:38 / elin
Þá er maður alveg komin á þá skoðun að það er rosalega gott að vera ekki að vinna! Held ég fari bara aldrei að vinna aftur . Það er alveg dásamlegt að leggjast aftur upp í rúm þegar elskurnar mínar eru farnar í skólann og vinnu. Eini gallinn er sá að ég á þá erfiðara með að sofna á kvöldin. Lilli kútur dafnar vel og er byrjaður að undirbúa komu sína með tilheyrandi samdráttarverkjum. Ég sömuleiðis dafna út á við og er farin að þyngjast aðeins of mikið. Veit alveg að það er mikið til sperlar sem ég er að safna á mig og svo auðvitað það sem hann er að þyngjast líka. Það er heldur ekkert pláss fyrir greyið að athafna sig . Við Auður fórum saman í Kringluna í dag til að kaupa svona það síðasta sem okkur vantar af fötum fyrir Lillann í dag. Keyptum kuldagalla, eitt sett af gæjafötum, þrenn náttföt og og einn mjúkann galla. Það er óttarlegur galli þegar er svona langt á milli barna að það verður að kaupa allt nýtt, og sérstaklega á svona nýfædd kríli. Og það er ekki hægt að segja að ungbarnaföt séu neitt ódýr hér á landi. T.d voru kuldagallar fyrir svona nýfædd til 3 mánaða frá 4000 og upp í 12000 kr. Fékk bara tilfelli . En ég (Nenni níski) fann galla á útsölu á 2400 . En þetta er allt saman komið. Vantar bara að fá litla í heiminn. Jæja, farin að horfa á Pressuna. Later Elín
»
11.01.2008 18:46:23 / elin
Jæja, ætla að hripa hérna nokkrar línur. Kannski er við hæfi að óska ykkur til hamingju með nýja árið . Vona að það verði farsælt og gott!. Ég er ekki búin að vera í neinu stuði til að blogga síðustu daga. Er búin að vera með hnút í maganum eftir síðustu mæðraskoðun. Þá kom í ljós að ég hafði lést um 1,5 kíló yfir jólin og legbotninn ekkert hækkað á þremur vikum. Ljósan mín hafði áhyggjur að vöxturinn væri ekki eðlilegur hjá krílinu og pantaði tíma í vaxtarsónar. Við þurftum að bíða í viku eftir þeim tíma og auðvitað var ég að kafna úr áhyggjum og bjóst við því versta. En, við fórum í sónarinn í dag og til allra hamnigju var allt eðlilegt í bumbunni. Hann er orðin 12 merkur í dag og er 14% yfir meðalþyngd, svo að við megum búast við ágætis bolta þegar hann kemur í heiminn . En það segir mér eitthvað að hann verði ekki nema 13-14 merkur, sem er í sjálfu sér mjög fínt. Fengum líka þessa fínu vangamynd af honum með kossastút á vörunum . Verður örugglega kelirófa eins og dóttirinn . Ég hætti að vinna um áramótin og er ekki alveg að meðtaka það ennþá. Er á köflum frekar eirðarlaus. Er gjörsamlega að kæfa tengamömmu með endalausum heimsóknum og neita að fara fyrr en Auður er búin í skólanum. Þá nenni ég heim. En tengdó er að fara til Kanaríeyjar á þriðjudaginn og ég held að verði hálf vængbrotin þegar hún er farin. En ég bjargast allveg, þarf að gera klárt fyrir krílið sem kemur eftir mánuð. Það verða kannski ekki miklar fréttir í gangi af mér á meðan ég sit heima og geri mest lítið og ekki neitt. Þangað til næst. Elín og fjölsk.
»
18.12.2007 11:16:12 / elin
Nú mega jólin bara koma. Allt að verða tilbúið. Það er lítið annað eftir en að henda sér uppí sófa og flatmaga þar í nokkra daga yfir jólin. Afrekaði áðan að kaupa jólagjöfina handa mínum heitelskaða. Annað hvort verð ég myrt eða hann gæti ekki elskað mig meira . Held samt að ég hafi valið rétt handa honum í ár, þó svo hann sé ánægður með allt sem hann fær. Það verður að koma í ljós . 5 vinnudagar eftir! Er orðin nokkuð spennt ef ég á að segja alveg eins og er. Er orðin algjer drusla líkamlega að mér finnst. Alltaf þreyttari og þreyttari, alltaf á tollaranum, finnst alltof heitt allsstaðar, og svo framvegis og framvegis. Bumbuílus er komin í höfuðstöðu og bíður bara eftir að koma út. Er að reyna að díla við han um að koma kannski viku fyrr eða svo . Ennnn...... ég er komin í bloggfrí fram yfir jól. Svo ég óska ykkur sem lesa síðuna hjá mér Gleðilegra jóla og hafið það sem allra best yfir hátíðina. Kveðja Elín
»
13.12.2007 09:17:45 / elin
Er ekki búið að versla allar jólagjafir, pakka þeim inn og senda þær?. Ég er ekki búin alveg, en er svo sem ekkert að stressa mig. Kemur allt með kalda vatninu, eða heita...man ekkert hvort var. Ég á eftir 9 vinnu daga svo er ég komin í frí í langan tíma . Hann Arnar doksi vildi að ég myndi hætta að vinna um áramótin og hvíla mig veeellllll fyrir átökin í febrúar. Ég var alveg skrefi á undan honum vegna þess að ég var búin að ákveða að hætta um áramótin . En þá er ég alfarin frá þessu fyrirtæki sem ég starfa hjá í dag. Ég ætla að einbeita mér að móðurhlutverkinu eins lengi og ég get og svo finna mér eitthvað fjölskylduvænt starf . Nenni ekki að blaðra meira í bili. Elín
»
10.12.2007 11:01:14 / elin

Næstum því 2 kíló og 37 cm á lengd.
»
05.12.2007 11:36:01 / elin
Hver nennir jólastressi? Ekki ég!. Það er búið að hengja upp 50 seríur hér og þar um íbúðina okkar . Eiginlega ljómar íbúðin eins og jólatré. Þarf ekki að kveikja nein loftljós hjá mér nema í eldhúsinu. Ætla samt að setja eina seríu þar líka . Jólamaturinn á Salthúsinu í Grindavík var alveg guðdómlegur. Mæli alveg með þeim stað. Mæli samt ekki með Grindavík. Hann er daufari heldur en Þorlákshöfn og með miklu minni gróður!. Ég tók einn rúnt þarna um og náði aðeins að villast í smástund . En það er alveg rosalega mikið byggt þarna. Liðið hjá Samhentum var auðvitað alveg frábært og mikið stuð á þeim. Það var dregið um jólapakka(sumir ánægðir en aðrir ekki), haldið mjög stutta ræðu, étið yfir sig, drukkið og dansað við hljómsveit frá Hveragerði. Ég gafst upp klukkan 12 og keyrði heim með fullan bíl. Það voru víst fleiri en ég þreyttir . Lét mig hafa það að fara í Kringluna með dóttir minni í gær og kaupa jólagjafir. Ég hafi ekki mikla þolinmæði í þetta, en Auður mín hefur meðfædda hæfileika til að hanga í Kringlunni og skoða. Annað hvert orð hjá henni var í gær "Aujjjjjj" eða "dííí sjáðu mamma". Svo kom á milli hjá henni "Mig langar í svona" og "Eigum við að gefa einhverjum svona". Dásamlegt! . Ætla að skreppa í Smáralind í hádeginu, bara út af því að mér finnst svo gaman í búðum!. Á ég að versla eitthvað fyrir ykkur í leiðinni?
»
27.11.2007 11:48:54 / elin
Mæðraskoðun búin, sólstofan búin, laufabrauðið búið, og örugglega eitthvað annað sem ég man ekki eftir er líka búið. Mæðraskoðun gekk ágætlega fyrir utan einhverjar sýkingar í blöðru. Fer að hitta fæðingalæknir núna 6 des til að athuga hvort ég fái að koma barninu út á eðlilegan hátt eða með keisaraskurði. Vona svo sannarlega að það verði fyrri kosturinn. 10 dögum seinna fer ég aftur til Nínu ljósu. Við fluttum draslið inní sólstofuna á síðasta fimmtudag, og þvílíkur munur. Það var mikið hreinsað til þar og hent. Það bergmálar þar inni núna sem er bara fínt. Laugardagurinn fór allur í laufabrauðsbakstur með fjölskyldu tengdó, heima hjá mér og mínum heittelskaða. Tengdó mætti aðuvitað rúmlega 8 um morgunin og dröslaðist ekki heim fyrr en 10 um kvöldið, frekar þreytt. Við bökuðum nákvæmlega 431 köku en þær voru 432 þangað til ein flaug á gólfið fyrir steikningu . Neee, ég veit ekki nákvæmlega hvað þær voru margar en ég veit að það vara bakað um 430 kökur í ár. Svo var auðvitað eldað hangikjöt með tilheyrandi eftir steikingu. Langar ekki í meira hangikjöt á þessu ári. Voða lítið að gerast á næstunni, nema jólahlaðborð hjá Samhentum, sem verður í Grindavík á föstudaginn. Minn heittelskaði, duglegi og fallegi maður er með hangandi höfuð vegna kvefs og slappleika. Það virðist sem kvefpest sé búin að festa sig í flestum borgarbúum. Ég fæ bara sýnishorn af öllu sem kemur, en verð ekki þannig veik...7-9-13. Seinna....... Elín
»
21.11.2007 10:22:58 / elin
Ég veit ekki hvort það er vegna þess að ég er ólétt, en ég er alltaf að hugsa til baka þessa dagana. Er að rifja upp tíma alveg frá því að ég bjó í blokkinni í Þorló. Var að hlægja af því innra með mér að það var frí í sjónvarpinu á fimmtudögum og það þurfti að panta myndir í gamla Beta tækið frá Vestmannaeyjum til að hafa vídeókvöld í sameigninni . Aðal leikvöllurinn hjá okkur voru göturnar, bílaplanið og móinn og klettarnir fyrir framan blokkina. Eggert á móti átti reiðhjól sem maður lærði að hjóla á. Og á túnið fyrir framan blokkina komu svo rosalega stórir snjóskalflar, að það var hægt að byggja þar fleiri blokkir . Hef ekki séð snjóskafla þar í nokkur ár. Í Eyjarhrauninu var það Kíló,Brennó, Ein króna og fleiri leikir sem okkur datt í hug. Leitarsvæðið í feluleikjum var allt Eyjarhraunið svo það var mikið hlaupið. Eins og Þorlákshöfn er lítill bær þá man ég ekki eftir að krakkarnir neðan úr þorpi hafi verið þarna í leikjum. Ætli þau hafi verið með sína leiki á sínu svæði ?. Þetta er orðið spurning hvort maður ætti að setja þessar minningar sínar á prent, bæði til að minna sig á í ellinni og fyrir börnin manns. Það er alveg ótrúlegt hvað margt gleymist á stuttum tíma og ég vil meina að maður verður að halda í minningar sínar vegna þess að þær móta þig og hver þú ert. Arnar Freyr vinur er með alveg ótrúlegt minni og er alltaf að rifja eitthvað upp sem ég man ekki eftir eða rétt rámar í. Vildi að ég hefði fortíðarminnið hans. En svo eru alltaf tímamót sem sitja föst í hausnum á manni sem betur fer. Flutningar, sambönd, barnaeignir, ný vinna, ferðalög,vinir og svo framvegis. T.d sitja minningar um minn heitelskaða fast í hausnum á mér. Ég man alveg hvar ég hitti hann fyrst, hvenær ég reyndi við hann, þegar hann hafnaði mér , þegar hann reyndi við mig, þegar við byrjuðum að vera saman, og hvernig ég læsti klónum í hann svo hann átti ekki séns að losna við mig . Þetta gerðist allt fyrir 16 árum síðan . Fæðing dóttur okkar gleymist auðvitað aldrei og svo bætist örugglega við fæðing litla bumbubúans í minningapakkann. Fulll væmið svona í morgunsárið, en það er engin að neyða ykkur til að lesa þetta. Veit samt að ef þið lesið þetta þá farið þið að hugsa til baka um ykkar fortíð . Munið þið ennþá eftir hvernig þið kynntust mökum ykkar, eða hvað þið gerðuð þegar þið voruð yngri? Nei, maður bara spyr?
»
16.11.2007 09:16:43 / elin
Þetta eru orðin sem ég heyri heima hjá mér í dag. Hagkaup er búin að senda dótalista fyrir jólinn líka, svo dóttir mín er með TVO lista til að velja úr. X-in eru orðin ansi mörg og það er byrjað að setja áherslur á það sem er í mestu uppáhaldi. Meira að segja er búið að rita orðin " Ég vel þessa" með sérstakri áherslu og ansi mörgum örvum til benda á. Ég bíð spennt eftir að Just 4 Kids sendi frá sér bækling svo þetta verði nú ennþá meiri spennandi. Ætli það verði ekki sá dagur þegar ég fer og kaupi mér eyrnatappa og segi bara já við öllu án þess að vita við hverju . Persónulega finnst mér að það ætti að vera bannað með lögum að senda svona bæklinga út fyrr en 23 des . Bara svo fullorðnir haldi geðheilsu . Minn heitelskaði er alveg að verða búinn með sólstofuna hjá okkur. Það á bara eftir að setja loftaþiljur og mála veggina. Og auðvitað svona smá dútl. Ég ætla að fara í dútlið og málninguna. My favorite . Það verður líka voðalega gott að þetta verður búið fyrir næstu helgi. Þá verður Hin Árlega Laufabrauðagerð heima hjá okkur. Bumbulíus er voða sprækur og duglegur að láta vita af sér. Ég held að hann vilji bara koma út stundum en það er ekki í boði alveg strax . Við förum í skoðun á miðvikudag og Auður orðin rosa spennt. Hún lætur eiginlega eins og hún sé að fara að hitta bumbulíus, spenningurinn er svo mikill. Er alveg að vinna í því að setja inn þessar bumbumyndir inná síðuna hjá Auði, og finnst meira en líklegt að ég tuski þeim inn um helgina. Góða helgi alle grúbba. Adios
»
13.11.2007 10:29:48 / elin
Pappinn og þakjárnið komið af og nýtt komið á . Fengum dásamlega duglega drengi á laugardaginn eftir hádegi til að hjálpa til við að rífa og setja nýtt þak á. Þeir og minn maður rumpuðu þessu af á ótrúlegum tíma, miðað við allar pásurnar . Svo ætlar minn heittelskaði að byrja á loftinu að innan verðu í vikunni. Ég hlakka svo til....ég hlakka alltaf svo til..... Bara grín Svo verður málað og hreinsað og svo kabúmm!! Rosa flott sólstofa fyrir jólin . Ég og bumbupúkinn erum að "bonda" alveg á fullu áður en hann kemur í heiminn. Við erum farin að æfa dans í maganum á mér og kick box. Ég var að vísu ekki búin að gefa leyfi fyrir þessum æfingum en það virðist sem þetta barn ætli ekkert að hlusta á mig heldur. Hann er voða rólegur þegar ég hlusta á Sálina eða Coldplay, en er ekki sáttur við U2. Eða öfugt, hver veit? Auður gelgja (sem á að vera að setja inn fréttir á sinni síðu) er alltaf í boltanum og auðvitað skólanum. Mér finnst alveg frábært að fylgjast með henni lesa þessa dagana. Hún les með svo miklum leik að það er engu líkt að maður sé komin í leikhús . En þetta virkar vel og hún les voðalega vel. Ég er ekki viss um að ég hafi verið svona leikræn í mínum lestri á hennar aldri. Uppáhaldsbókin hennar eða réttara sagt blaðið, er Toys "R" Us sem hefur ekki vikið frá henni í heila viku. Hún er búin að skoða þetta blað endalaust og búin að setja ansi mörg X við það sem við gætum gefið henni í jólagjöf ef við viljum. Ég verð að gefa þessari leikfangaverslum prik fyrir góða markaðsetningu . Búin að panta flugið á Spán, núna er bara að bíða. Luv, Elín
»
07.11.2007 09:26:39 / elin
"Geri ekki neitt fyrir
neinn, sem gerir ekki neitt fyrir neinn."
Var frasin úr Sódóma Reykjavíkur ekki
svona?
En ég ætla að halda mig við þessa speki og
lifa samkvæmt henni.
»
Síður: 1 2 3 ... 13
|
|